03.10.2011 15:09:12 / leiknir

Æfingar að hefjast

Kæru foreldar/forráðamenn iðkenda hjá knattspyrnudeild ÍR.

Mánudaginn 3. október næstkomandi munu æfingar hefjast hjá knattspyrnudeild ÍR. Við höfum loks náð að manna allar þjálfarastöður og erum nú í þessum töluðum orðum að setja á æfingartíma hjá 3. og 4. flokki kvenna. Allir aðrir flokkar voru komnir með æfingatíma og voru þeir auglýstir strax um leið og þeir voru klárir. Tveir nýir þjálfarar taka til starfa hjá knattspyrnudeildinni en þeir verða Bjarni Víðir Pálmason og Brynjar Óli Guðmundsson. Bjarni Víðir mun þjálfa 3. og 7. flokk kvenna en Brynjar Óli tekur við þjálfun 4. flokks.

Nokkrar breytingar verða á þjálfarateymi deildarinnar þetta árið en við erum sannfærð um að þær breytingar eigi eftir að koma félaginu og iðkendum til góða. Allir þjálfarar uppfylla skilyrði U.E.F.A og KSÍ um menntun þjálfara og því teljum við okkur bjóða uppá vel menntaða þjálfara og metnaðarfullt starf líkt og síðustu ár. Eins og áður hefur komið fram þá mun samstarf ÍR og Leiknis í kvennaflokkum hefjast formlega á mánudag en félögin tvö eru sannfærð um að það muni einungis efla kvennastarf félagana. Til þess að þetta verkefni takist þá biðjum við foreldra og forráðamenn að aðstoða okkur við margvísleg foreldrastörf í flokkunum og halda vel utan um starfið í samstarfi við þjálfara deildarinnar. Við erum viss um að fjöldi iðkenda í kvennaflokkunum á eftir að aukast og öll umgjörð í kringum kvennaknattspyrnu eigi eftir að vaxa og dafna á komandi árum. Þar með munum við eignast fleiri leiknari ÍR-stelpur í komandi framtíð og eldri flokkar líkt og 3. og 4. flokkur þurfa ekki að strögla við að ná í lið eins og staðreyndin hefur verið síðustu ár hjá báðum félögum. Nánari upplýsingar um samstarfið verður rætt á foreldrafundum flokkana í enda október.

Uppskeruhátíð yngri flokka var haldin laugardaginn 17. september en þar var öllum iðkendum afhent liðsmynd til eignar. Einhverjir iðkendur misstu af hátíðinni og þeir sem fengu ekki myndina geta fengið hana hjá Dóra eftir helgi. Einnig er hægt að óska eftir að fá myndina senda á vefpósti ef einhverjr vilja prenta þær út í betri gæðum heima. Vinsamlegast sendið þá vefpóst á irknattspyrna@hotmail.com
Hér er hægt að sjá liðsmyndir af öllum flokkum: http://www.ir.is/Deildir/Knattspyrna/MYNDASAFN/

SKRÁNING IÐKANDA FYRIR NÝTT ÆFINGATÍMABIL – ATH. MJÖG MIKILVÆGT AÐ KLÁRA SEM FYRST.
Félagið er að taka í notkun nýtt skráningarkerfi og því verða allir forráðamenn að skrá börn sín og ganga um leið frá greiðslu æfingagjalda. Skráning fer ekki í gegnum þjálfara. Hér er slóðin inn á skráningarvefinn https://ir.felog.is og í meðfylgjandi pdf skjali eru leiðbeiningar (smellið HÉR til að nálgast skjalið). Kerfið er samtengt Rafrænni Reykjavík og því er mjög auðvelt að ráðstafa styrknum á sama tíma, sem svo dregst frá heildarupphæðinni. Kerfið býður uppá að geta skipt upp kreditkortagreiðslu á nokkur tímabil, allt eftir upphæð æfingagjalda. Ef greiða þarf með öðrum hætti þarf viðkomandi að koma á skrifstofu ÍR á skrifstofutíma kl.10:00-16:00. Þeir sem þurfa aðstoð við skráningu eða vilja greiða með öðrum hætti, bendum við á skrifstofu á 2.hæð ÍR heimilis að Skógarseli.

Þjálfarar flokkana verða eftirfarandi og allar upplýsingar um hvern flokk eru settar inn á bloggsíður flokkana. Upplýsingar um þjálfara og æfingar er hægt að sjá á http://www.ir.is/Deildir/Knattspyrna/Yngriflokkar/

KARLA FLOKKAR.
3.flokkur karla – www.3flokkurir.blogcentral.is
Eiður Ottó Bjarnason og Engilbert Friðfinnson.
4. flokkur karla – www.4.flokkurir.blogcentral.is
Halldór Þ. Halldórsson og Óli Halldór Sigurjónsson.
5. flokkur karla – www.5flokkurir.blogcentral.is
Halldór Þ. Halldórsson og Heimir Berg Halldórsson.
6. flokkur karla – www.6flokkurir.blogcentral.is
Óli Halldór Sigurjónsson, Halldór Hrannar Halldórsson.
7. flokkur karla – www.7flokkurir.blogcentral.is
Árni Guðmundsson, Jóhann Ingi Hjaltasson og Daníel Þór Steinsson.
8.flokkur karla og kvenna – www.8flokkurir.blogcentral.is
Halldór Þ. Halldórsson og Ivana Anna Nicolic.
Aðrir sem munu koma að æfingum 8., 7. og 6. flokks karla
Heimir Berg Halldórsson, Ísleifur Gissurarsson, Reynir Haraldsson og Jón Ágúst Engilbertsson.

KVENNAFLOKKAR
3. flokkur kvenna - www.irstelpur3.blogcentral.is
Bjarni Víðir Pálmason.
4. flokkur kvenna - www.irstelpur4.blogcentral.is
Brynjar Óli Guðmundsson.
5.flokkur kvenna - www.irstelpur5.blogcentral.is
Bryndís Jóhannesdóttir.
6.flokkur kvenna - www.irstelpur6.blogcentral.is
Tanja Nicolic og Ívana Anna Nicolic.
7. flokkur kvenna - www.irstelpur7.blogcentral.is
Bjarni Víðir Pálmasson.

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.09.2011 22:11:36 / leiknir

Uppskeruhátíð Leiknis

Laugardaginn 24.september næstkomandi fer einnig fram uppskeruhátíð Leiknis einsog áður hefur komið fram. Uppskeruhátíðin fer fram í húsakynnum Hólabrekkuskóla líkt og undanfarin ár og dagskráin stendur á milli 12 og 14.

Á uppskeruhátíðinni verða að vanda verðlaun og viðurkenningar veittar iðkendum, kökur og kræsingar á borðum og fyrsta flokks skemmtiatriði. Foreldrar hafa iðulega fylgt veisluborðið af kræsingum og biðlum við til ykkar foreldra og forráðamanna að vanda að koma með eitthvað kruðerí til leiks en tekið verður á móti kökum í Hólabrekkuskóla frá klukkan 11.00 um morguninn.

Hvetjum við alla Leiknismenn, stóra sem smáa, stirða sem knáa. aldna sem unga að mæta og eiga góða stund með félögum sínum og vinum í Leikni.


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.08.2011 22:36:03 / leiknir

Ný æfingatafla

Ný æfingatafla


Mánudagar: 16:30-17:30  á Leiknisvelli
 
Þriðjudagar: 16:30-17:30  á Leiknisvelli

Fimmtudagar: 16:30-17:30  á Leiknisvelli


Kveðja Tara og Sirrý


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.08.2011 00:09:54 / leiknir

Næsti leikur í Vestmanneyjum!

Sælar stelpur

Næsti leikur er á fimmtudaginn á móti ÍBV í Vestmanneyjum.

Leikurinn byrjar klukkan 15:00 og er mæting upp í Leiknishús klukkan 10:30

Við leggjum af stað frá Leiknishúsinu klukkan 10:45, áætlað er að vera komin á Landeyjahöfn um 12:30 og fer Herjólfur klukkan 13:00

Það verður síðan farið heim með Herjólfi klukkan 17:30, komin 18:00 í Landeyjahöfn.


Mamma hennar Ellu fer með og verður á bíl, það vantar enn 2 bíla til að keyra frá Leiknishúsinu þannig allir að spurja foreldra sína hvort þeir geta keyrt.

Síðan vantar líka 2 bíla til að sækja krakkana á Landeyjahöfn klukkan 18:00 á fimmtudeginum.

Það þurfa svo allar að taka með sér 3.500 kr. fyrir Herjólfi og bensíni.

Einnig taka með sér nesti og muna svo eftir legghlífum, takkaskóm, stuttbuxum og leiknissokkum


Kveðja Tara og Sirrý


» 11 hafa sagt sína skoðun

11.08.2011 23:49:42 / leiknir

Leikur mánudaginn 15.ágúst.

Það er leikur Mánudaginn 15.Ágúst á Leiknisvelli á móti Grindavík.
Það er mætgin kl 16:15 á leiknivöll og leikurinn byrjar kl 17:00
Láta vita hvort þið komið eða komið ekki.

Kv. Tara og Sirrý

» 5 hafa sagt sína skoðun

18.07.2011 14:20:03 / leiknir

Sumarfrí


>

Það er komið sumarfrí í fótboltanum sem verður í 2.vikur.
Æfingar byrja aftur þriðjudaginn 2. ágúst 
/>

>

Kveðja Tara og Sirrý />




» 1 hafa sagt sína skoðun

08.07.2011 21:16:42 / leiknir

Leikur 12.Júlí.

Það er leikur Þriðjudaginn 12.Júlí við Þrótt á Leiknisvelli.
Leikurinn byrjar kl 17:00 og það er mæting kl 16:15.
Láta vita hvort þið komist eða komist ekki.

Kv.Tara og Sirrý

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.07.2011 16:05:59 / leiknir

Leikur 4. júlí á Leiknisvelli og 7.júlí í Keflavík


Næsti leikur er núna á mánudaginn 4. júlí á móti Víði á Leiknisvelli.
Mæting 16:15, leikurinn byrjar 17:00

Það er leikur í Keflavík fimmtudaginn 7.júlí.
Mæting 13:00 í leiknishús og lagt verður af stað kl 13:15. Taka með sér 500 kr í bensín. Leikurinn byrjar 15:00.
Það vantar bíla til að keyra þannig allar að athuga hvort foreldrar ykkar geti keyrt.
Láta vita sem fyrst.

Kv.Tara og Sirrý


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.06.2011 21:48:05 / leiknir

Leikur mánudag 27.júní í Grindavík

Það er leikur á morgun (mánudag) við Grindavík í Grindavík. Mæting kl 13:00 í leiknishús og það vantar enn bíla til að keyra. Láta vita ef þið komist ekki.
Taka með takkaskó,stuttbuxur,vatnsbrúsa,legghlífar, 500 kr í bensín.

Kveðja Tara og Sirrý

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2011 19:22:42 / leiknir

Leikur á þriðjudaginn 21. júní


Næsti leikur í Íslandsmótinu er á þriðjudaginn næsta (21. júní)

Leikurinn er á móti Ægi og er hann á Leiknisvelli

Mæting 16:00 og byrjar leikurinn 17:00


Allar að láta vita sem fyrst ef þær komast ekki :)


Kveðja Tara


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.06.2011 23:34:51 / leiknir

Æfingar í sumar!

Ný æfingatafla


Mánudagur 14:00 Leiknisvöllur

Þriðjudagur 14.00 Leiknisvöllur

Miðvikudagur 14.00 Leiknisvöllur

Fimmtudagur 14.00 Leiknisvöllur

Muna að láta vita ef þið komist ekki á æfingar <img src=" src="../../../images/smileys/icon_smile.gif" />


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.06.2011 11:03:07 / leiknir

Pæjúmót!! A.T.H.!


Pæjumót 2011 

8.-11. júní 

Brottför (8.júní) : Mæting 10:00 (ekki seinna) uppí Leiknishús, farið verður á bílum að Landeyjahöfn. ( Vantar enn 2 bíla til að keyra)
Lagt verður af stað frá Leiknishúsinu 10:30 og því er mikilvægt að allir mæti tímanlega. Herjólfur fer kl. 13:00

Dagskráin í Vestmanneyjum er síðan hægt að sjá hér : http://paejumot.ibv.is/frettir/frett/titill/dagskra_paejumotsins

Heimkoma (11. júní) : Brottför með Herjólfi 20:30, komin í Landeyjahöfn 21:00


Heildarverðið fyrir pæjumótið er  17.500 krónur.
Í því er innifalið matur, gisting, mótsgjald, miði í herjólf og 500 króna vasapeningur fyrir einhverju sælgæti á laugardeginum.

Farastjórar eru:
Guðni(pabbi karenar) sími: 8588212
Stella (mamma ellu) sími: 6912780 
Tara þjálfari sími: 8652826
Sirrý þjálfari sími: 6596726
Hægt verður að hringja í okkur ef einhvað er. :)

Það þarf að vera búið að borga fyrir 6. júní!
Reikningsnúmer : 0319-26-081027
Kennitala:             280192-2609

Það þarf að muna eftir öllu. Skrifið niður og chekið við það sem þið eruð búnar að setja niður í tösku.
Það sem þarf að taka með:

1000 kr fyrir pizzuveislu á miðvikdeiginum.
2.ávexti
Leiknisstuttbuxur
Leiknissokka
Takkaskó
Legghlífar
Vatnsbrúsa
Dýnu
Svefnpoka/sæng
Kodda
Hlý föt
Regnföt
Náttföt
Tannbursta og tannkrem
Teygjur, spennur og hárband
Handklæði og sturtudót
Sundföt
Skó
Úlpu
Sokka og nærföt
Fín föt (fyrir kvöldvökuna)
Sólarvörn
Bakpoka
Hárbursta

Símar, ipodar og myndavélar eru á ykkar eigin ábyrgð ef þið viljið taka þá með!

Það má ekki taka neinn pening með sér, þið fáið pening frá okkur á laugardeginum til að kaupa nammi.


Kveðja Tara og Sirrý <img src=" style="border-top-style: none; border-right-style: none; border-bottom-style: none; border-left-style: none; border-width: initial; border-color: initial; max-width: 610px; " />

Leikir pæjumóts.


Fimmtudagurinn 9.júní.
Þórsvelli 1.

10:20 Leiknir-FH
13:40 Leiknir-ÍR
16:20 Leiknir-Fram

Föstudagurinn 10.júní.
Týsvöllur1

9:40 Leiknir-Valur
11:40 Leiknir-Vikingur
14:20 Leiknir-KA



» 1 hafa sagt sína skoðun

06.06.2011 15:01:04 / leiknir

Ný æfingatafla

Ný æfingatafla


Mánudagur 14:00 Leiknisvöllur

Þriðjudagur 14.00 Leiknisvöllur

Miðvikudagur 14.00 Leiknisvöllur

Fimmtudagur 14.00 Leiknisvöllur

Muna að láta vita ef þið komist ekki á æfingar :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2011 12:58:16 / leiknir

frí og leikur.

Það er frí á æfingu í dag mánudag 06.juni :) 

Leikur á Þriðjudaginn 7.júní á móti Þrótti. 
Mæting á Þróttaravöll kl 16:15 og leikurinn byrjar kl 17:00.
Muna eftir legghlífum,sokkum og takkaskóm.
Láta vita hér á blogginu hvort þið komist eða komist ekki.

Kveðja Tara og Sirrý

Minni á upplýsingar um pæjumót hér fyrir neðan ;) 

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.05.2011 22:40:27 / leiknir

PÆJUMÓT 2011


Pæjumót 2011

8.-11. júní

Brottför (8.júní) : Mæting 10:00 uppí Leiknishús, farið verður á bílum að Landeyjahöfn. ( Vantar enn 2 bíla til að keyra)
Lagt verður af stað frá Leiknishúsinu 10:30 og því er mikilvægt að allir mæti tímanlega. Herjólfur fer kl. 13:00

Dagskráin í Vestmanneyjum er síðan hægt að sjá hér : http://paejumot.ibv.is/frettir/frett/titill/dagskra_paejumotsins

Heimkoma (11. júní) : Brottför með Herjólfi 20:30, komin í Landeyjahöfn 21:00


Heildarverðið fyrir pæjumótið er  17.500 krónur.
Í því er innifalið matur, gisting, mótsgjald, miði í herjólf og 500 króna vasapeningur fyrir einhverju sælgæti á laugardeginum.

Það þarf að vera búið að borga fyrir 6. júní!
Reikningsnúmer : 0319-26-081027
Kennitala:             280192-2609


Það sem þarf að taka með:

Leiknisstuttbuxur
Leiknissokka
Takkaskó
Legghlífar
Vatnsbrúsa
Dýnu
Svefnpoka/sæng
Kodda
Hlý föt
Regnföt
Náttföt
Tannbursta og tannkrem
Teygjur, spennur og hárband
Handklæði og sturtudót
Sundföt
Skó
Úlpu
Sokka og nærföt
Fín föt (fyrir kvöldvökuna)
Sólarvörn
Bakpoka
Hárbursta

Símar og ipodar eru á ykkar eigin ábyrgð ef þið viljið taka þá með!

Það má ekki taka neinn pening með sér, þið fáið pening frá okkur á laugardeginum til að kaupa nammi.


Kveðja Tara og Sirrý :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 36
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 106879
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti